|
|
04.05.2008 16:02:50 / lisayr
Ég ætla ad hætta med tessa sídu og hef fært mig á 123.is/embla05 og tar eru bædi bloggfærslur og myndir
»
15.04.2008 11:49:05 / lisayr
Tad er ágætt ad fá komment um ad tad vanti blogg Amla mín tá brettir madur upp ermarnar og byrjar ad skrifa Eins og flestir vita ad tá fórum vid til Íslands í jardaför ömmu hans Andra. Tad var ekki gaman ad turfa ad koma til íslands undir tessum kringumstædum heldur hefdi madur viljad ad geta heimsótt hana í stad tess ad jarda hana. Hún lést ad völdum bílslys. Embla mín er búin ad vera hútt á Mjallhvíti og dvergana 7 og segir hún tegar vid vorum ad útskýra fyrir henni ad langamma væri dáin "tá gef ég bara ömmu blóm í glerkistuna og tá vaknar hún aftur" tetta bræddi sko hjörtu okkar algjörlega og var hún knúsud út í eitt 
Önnur gullkorn frá henni: Embla er algjör munnur og kemur med tessi yndislegu gullkorn sem kemur manni til ad brosa J Tennan dag var ég ad vekja hana kl 11 á sunnudagsmorgun og byrjadi mjög blýdlega ”Embla mín.. ástin mín tad er kominn dagur..ætlaru ekki ad koma á fætur” og strík á henni bakid. Tá opnar hún augun og segir ”mamma viltu ekki trufla mig á medan ég er ad lúlla”!! Og snýr sér á hina hlidina. Sama dag vorum vid ad keyra í Horsens og sat hún aftur í eins og vanarlega og ég var ad keyra med adra hendina á stýrinu og hina á gírstaunginni.. tá heirist í minni. ”Mamma villtu hafa bádar hendurnar á stýrinu á medan tú ert ad keyra”!! Ég tordi ekki ödru en ad hlýda tví barnid mitt sem var 3 ára hafdi sko rétt fyrir sér.(Eggid getur sko kennt hænunni) J Daginn ádur var hún med gos í fínu bleiku plast glasi á fæti sem hún fékk med te bollasetti einu sinni. Hana fanst tetta mjög spennandi. Tá hefur rifjast upp fyrir henni einu sinni tega afi Otti var ad segja okkur fullordna fólkinu tegar hann var einu sinni á bar í gamla daga og gerdi trix med vínglös hjá fólki. Tá sagdi hann manneskju ad setja saman báda vísifingurputtanna á bordid og setur hann svo glasid ofan á puttana. Manneskjan getur ekkert gert og ef hún reynir ad taka glasid (einhvernvegin) ad tá hellist úr tví. Og tá tók afi rör og saug úr glasinu og manneskjan turfti ad horfa uppá tad ad hann væri ad tæma glasid. Tetta var vod sidugt og segir Embla vid mig ”mamma settu saman puttana” og ég rétti bara fram lófann ”nei!!! Gerdu svona” og hún sínir mér hvernig á ad gera. Ég fattadi strax hvad var í gangi og gerdi tad samt til ad ath hvort ég hefdi rétt fyrir mig og hvort barnid væri ad muna eftir tessum leik. Kemur hún ekki med glasid og setur á puttana. Tad er sko eins gott ad passa hvad madur segir eda gerir tví einn daginn gerir hún tad sama hehe J
Tad hefur verid nóg ad gera hjá okkur tessa dagana. Sídasta vikan eda vikan eftir ad vid komum heim, vard Embla veik med hita, kved og læti svo vid Andri turftum ad skiptast á ad vera heima med hana. En hún svaf rosalega mikid svo madur hafdi tá nægan tíma til ad læra. En akkurat tessi vika var allt galid í skólanum med verkefni og fyrirlestra.. en tad er yfirstadid og gekk bara ágætlega 
Jæja nú er tími byrjadur og tarf ad fara ad fylgjast med og læra kiss og knús kv. Lísa ljós
»
28.03.2008 18:50:26 / lisayr
Hæ hæ eins og flestir vita þá erum vid lent á íslandinu góda og vildi endilega setja inn nýja íslenska símanúmerid mitt og mun alltaf vera med þetta númer þegar vid komum hingad til íslands. Ég sendi einhverjum sms um nýja númerid mitt en tar sem ad allt af mörg númer duttu út úr símanum mínum vid síma eda kortabreitingu og vantar því mörg númer og er því ad vonast að það skili sér einhverju með því ad setja númerid inn hér. Endilega ef tid fengud ekki sms frá mér ad skella inn kvedju med símanúmeri  En símanr mitt er S:8465615
»
21.03.2008 19:24:53 / lisayr
»
07.03.2008 11:48:53 / lisayr
Eins og ég sagdi í sídasta bloggi ad tá komu mamma og pabbi í heimsókn til okkar sídasta föstudag til tridjudags og var tad alveg yndislegt ad fá tau. Vid gerdum ekki mikig, vorum adalega í rólegheitum en síndum teim nátturulega skólann okkar, leikskóla, bæinn og fleira. Tad er kominn föstudagur aftur og allir komnir í föstudagsfílinginn.. byrjad ad tala um hverjir ætli á barinn og hvad eigi ad gera um helgina. Vid íslendingarnir vorum inn í stofu í matarhléinu og svorum af tjatta og segir einn "æhh hvad ég væri til í einn øl núna" tannig ad vid Ágústa vorum sendar nidur í mötuneiti ad kaup øllara ádur en dönskutíminn byrjadi. Vid sátum hérna inn í stofu og sötrudum einn og erum náttla tvílikt klár ad tala dönskuna eftir 1  vorum ad tala um ad mæta drukkin í munnlega dönskuprófid,, tá fengjum vid 10 hehehehehe.. En tangad til næst tá bid ég ad heilsa ykkur  Nu skåla vi for vores venner kv Lísa
»
28.02.2008 21:37:55 / lisayr
Helgin sídasta var nú frekar skemmtileg. Hún byrjadi á tví ad rölta med bekknum yfir á skólapöbbinn eftir sídasta tímann sem er búinn 14:20 og ætladi ég einungis.. tek tad fram EINUNGIS ad fá mér 1 eda 2 og gerdum vid Andri samkomulag ad skipast á ad fá okkur bjór med krökkunum svo vid getum nú sótt hana Emblu okkar tví tetta á örugglega eftir ad verda ad hefd ad fá sér 1 eda 2 í tilefni föstudagsins og slaka smá á  en já tad byrjadi tannig ad ég keypti mér 1 bjór og hann kostar bara 10 kr dk en svo átti einn bekkjarbródir okkar afmæli tannig ad hann keypti línu sem eru 11 øllarar og tad kostar bara 100 kr dk svo ad tá fékk madur sér af línunni og sídan keypti næsti línu og svo næsti. Andri var löngu farin og ég var ordin frekar í tví kl 4 med krökkunum úr bekknum. Tad var alltaf passad upp á tad af manni vantadi ekki bjór tví tad var alltaf einhver ad splæsa á mig. T.d eitt sem einn sagdi.. ég var ordin frekar vibbaleg og var ad fara ad koma mér heim um 9 leitid og tad var sagt.. "tú ert eithvad svo róleg, hérna ég skal ná í bjór handa okkur" Tad tímir enginn ad segja tetta heima.. hehe tad er geggjad stud tarna og var einmitt kennari med gítar ad spila á barnum. Á laugardeginum kom Valli ad heimsækja okkur og gisti eina nótt tví hann var hérna í dk í jardaför. Vid gátum ekki setid kjur og turftum ad sína honum mannlífid í Horsens. Rósanna kom hingad í 2-3 tíma til ad líta eftir Emblu og kíktum vid á eitt "kaffihús" og hlustudum á lifandi tónlist. Um 1 leitid komum vid heim og hittum Önnu og Bóa á skypinu og vorum vid hérna í "partýi" hehe tetta skype er geggjad kúl  Vikan er búin ad vera frekar strembin í skólanum tví mamma og pabbi eru ad koma núna á föstud og verda til tridjudags og turfum vid akkurat ad skila 3 verkefnum af okkur fyrir mánud.. en vid viljum ekki eida helginni sem tau eru hjá okkur í ad læra tannig ad tad er sko aldeylis búid ad bretta upp ermarnar og spíta í lófana og setid og lært tangad til madur legst uppí rúm og rotast. En audvita sinnir madur stelpunni líka og eldar mat. Embla er svo dugleg ad leika sér og í sínum mömmuleikjum tannig ad vid getum sokkid okkur í námid tess á milli og skiptumst á ad standa upp og leika vid hana. En jæja ég kem svo med fréttir frá helginni sem er ad koma  Verid nú dugleg ad kvitta svo ég sjái hvort einhver sé ad lesa bloggid eda ekki og hvort ég eigi ad hætta tessu eda ekki ....  Kvedja Lísa ljós
»
16.02.2008 15:31:18 / lisayr
búin ad setja inn myndir frá skólaferdinni inn á myndasaft. Endilega kíkid.. var ekki mikid ad laga, skrifa eda breita geri tad vid betra tækifæri
»
15.02.2008 20:53:10 / lisayr
»
20.01.2008 23:22:07 / lisayr
Sæl verid til..
bara ad láta ykkur vita ad ég hef sett inn fullt fullt af
myndum frá desember til janúar. Komst í tad fyrr en ég bjóst
vid tví nú á ég mína eigin ferdatolvu hehehehe Ég er búin
ad leggja hellings vinnu í tetta og vil fá kvittarnir í
gestabokina í stadin 
knús
tangad til næst.......... kv Lísa ljós
p.s Embla er komin med
leikskólapláss rétt hjá skolanum okkar og heitir Maríuhænan
hehe..kem med frekari fréttir af tví tegar eithvad meira hefur
sked.
»
17.01.2008 18:46:45 / lisayr
jæja tá er ég og Embla komin til køben til Andra. Vid ákvadum ad gista koma hingad degi fyrr svo vid gætum átt sma stund med Hebbu og Alla adur en tau fara til Tælands. Tau eru ad fara a morgun og verda i 2 vikur. Eins og tid vitid ad ta erum vid Andri komin i Vitusbering skolann í Horsens og erum ad fara i sama bekk i adgangskursus sem er tæknistudent. Tetta tekur 1 ár. Andri ætladi ad kaupa ser farolvu fyrir namid tvi hann tarf ad nota tolvu mikid i byggingartæknifrædinni, en hann elskar konuna sina svo mikid ad hann keypti 2 fyrir 1 semsagt lika fyrir mig. Vid verdum sko flottu hjónin med nýju fartølvurnar, og eins og tid sjaid ad ta er komid danskt takkabord  Vid erum lika buin ad fa leigusamninginn okkar i mosanum. Eg kikti i mosann og a ibudina sem vid faum og faum vid radhus med 2 ibudum ekki langt radhus med morgum ibudum og er tad stor plus svo vid seum ekki alveg ofan i næsta nagranna. Tad er pallur og gardur med, bara mjog huggo. Vid faum afhent 1.feb og mun eg henda inn myndum af ibudinni inn a barnaland. En nuna erum vid bara ad hugga okkur i køben og Andri ad vinna. Allt gengur eins og tad a ad ganga og eina sem vid bidum eftir er leikskolaplassid en ættum vid ekki ad bida lengi. Tar til næst.. kossar og knus kvedja Lisa ljos
»
14.01.2008 11:06:30 / lisayr
Þá eru komnar fréttir frá okkur í Horsens. Ég og Andri erum búin að fá inn í skólann og förum við bæið í adgangskursus. Andri ætlar í byggingartæknifræðina í stað verkfræði og þarf hann þá að taka adgangskursusinn fyrst. Ég ákvað að skella mér líka því þetta nám opnar mig fyrir svo mörgu, og í rauninni er þetta stúdestspróf hér í danmörku sem við tökum á 1 ári. Við erum búin að fá íbúð en fáum hana ekki afhenta fyrr en 1. febrúar og skólinn byrjar 4.feb þannig að við höfum smá tíma til að flytja Ég er búin að sækja um leikskóla fyrir Emblu og býst við að fá bréf frá þeim núna næstu daga, þar sem að þeir eiga að vera skildir til að láta okkur fá leikskóla innan við mánuð eftir að umsókn hefur borist þegar báðir foreldrar eru að fara í skóla, og meiri lúxusinn að borga ekki krónu í leikskólagjöld hehe Ég get því miður ekki sett inn myndir á barnaland fyrr en við erum flutt því ég er búin að tæma vélina á disk og diskurinn er í köben í geimslu en þegar að því kemur fáið þið jólamyndir, áramótamyndir og allann pakkann bara síðan í byrjun des Nú er Ég og Embla bara að huggast hér í Horsens og búun heima hjá Gumma og Rósu. Andri kemur um helgar og fer ég og Embla kanski yfir til hans til köben um næstu helgi því tengdó er að fara til tælands og getum við verið í íbúðinni þeirra, þar að segja ef hún verður ekki komin með pláss á leikskóla. Skvísan sjálf var 3 ára í gær, eða 13. jan og gerðum við glaðan dag fyrir hana þótt veislan var ekki stór. Ég bakaði kökur (jiii hvað ég verð að fara að æfa mig að baka og rétti. Hún fékk gjafir og fórum við í keilu. Svakalegt stuð hjá minni. Hún fékk prinsessu kórónu og var með hana allan daginn og í febrúar sjáið þið myndir frá því. En þar til næstu fréttir berast, þá bið ég að heilsa ykkur í bili Kossar og knús Kveðja Lísa ljós
»
02.01.2008 15:51:07 / lisayr
Jæja þá er sko kominn tími á smá blogg þar sem að við erum búin að vera í yndislegri Íslands ferð hér um jól og áramót. Við komum hingað 20. des og vann ég minn síðasta vinnudag á elliheimilinu 19.des Þær voru alveg yndislegar við mig, gáfu mér kveðju gjöf og sögðu að þær ættu eftir að sakna mín og mætti koma aftur ef við hættum við að búa í Horsens Ferðin byrjaði um seinnipartinn 2o.des og vorum við ekki komin til Íslands fyrr en um 11 leitið. Það var alveg yndislegt að sjá mömmu og pabba á flugvellinum þegar við komum og var Embla alveg límd við þau. Við fórum beint heim til mömmu og pabba, Andri fór síðan beint að hitta Bóa (mágur eða eiginkona nr 2 Við Embla vorum þreittar eftir ferðalagið og höfðum það kósí heima. Embla hefur sofið hjá ömmunni og afanum allan tímann og við Andri út í skúr þar sem er lítil íbúð þar. Þau tóku ekki annað í mál en að hafa hana hjá sér og leifa okkur að vera tveim. Helgin fór í það að hitta vinina, Evu Sif og Hörpu á föstudeginum og hinar skvísurnar og maka á laugardeginum og var fengið sér í glas báða dagana og kíkt á lífið í borginni. Þorláksmessan var hugguleg. Það var pakkað inn gjöfum, kíkt til ömmu og afa og kíkt smá í bæinn. Jólin voru með einu orðum alveg svakalega hugguleg og notarleg. Borðað góðann mat, opnað gjafið, spjallað og legið í leti. Milli jól og nýárs hittum við hina og þessa og þar á meðal fór ég að hitta tannálfana (stelpurnar sem ég útskrifaðist með . Við fórum svo með mömmu, pabba, önnu, Bóa og Hirti í sumarbústað á föstudeginum til sunnudags og var það rosa huggó líka, fórum í pottinn og tókum svo Næturvaktar seríuna og horfðum á hana alla og hrikaleg snilld eru þessir þættir. Á sunnudags kvöldið ætluðum við að gista heima hjá Önnu Diljá og Hansa en Patrekur sonur þeirra var með hlaupabóluna svo að við skildum Emblu eftir heima hjá ömmu sinni og afa á meðan við kíktum til þeirra í mat og spiluðum og fórum svo heim um nóttina. Um áramótin fórum við í fjölskylduboð til Sollu frænku þar sem systkini pabba voru þar og börn. Síðan var tekið því rólega og eldaður hamborgarahryggur að hætti mömmu og mömmu meðlæti, alveg svakalega gott mmmm... nammi namm. Strákarnir létu það ekki á sig fá þótt að það var rok og rigning og sprengdu upp flugeldum. Nýársdagur fór ég og Anna systir með Emblu og Hjört í bíó á Alla og íkornana. Þetta var fyrsta bíó ferð Emblu og var rosalega spennandi allt saman. Síðan um kvöldið hittumst við Anna og Bói heima hjá þeim og spiluðum fram á rauða nótt. Dagurinn í dag sem sagt 2.jan hitti ég Evu Sif og Hörpu á Amerikan Style og fengum við okkur einn íslenskann burger þessi dagur mun líka fara í það að pakka niður og skipuleggja dótinu hennar Emblu í tösku úfff hún fékk svo mikið af gjöfum en sem betur fer meigum við vera með 60 kg og eithvað í handfarangur. Ferðin líkur á morgun og fljúgum við Kastrum á morgun. Við gistum eina nótt í Köben og keirum síðan til Horsens á föstudeginum og verðum hjá Gumma og Rósu. Andri fer reyndar síðan til Köben aftur á sunnudeginum til að vinna og ég og Embla verðum eftir og finnum íbúð handa okkur, leikskóla allann þann pakka. Úffff hvað þetta á eftir að vera erfiður mánuður en maður lítur bara á það bjarta og jákvæða En þar til næstu fréttir koma frá Horsens kveð ég í bili.... kv Lísa ljós
»
06.12.2007 17:42:55 / lisayr
Hæ elskurnar mínar.. af okkur er allt gott að frétta. Við erum búin að skila íbúðinni okkar og búum núna heima hjá tengdó. Þröngt meiga sáttir sitja þar sem að við erum í lítilli íbúð og þar sem að þau fengu ekki tíma til að koma sér fyrir áður en við tróðum okkur inn á þau sama dag og þau fluttu hehe við erum eins og litlar blóðsugur, alltaf að flytja og troða okkur inn á aðra. Þetta er rosalega huggó hérna og allir góðir við hvort annað, hunsum bara flutningskassana og töskurnar og kveikjum bara á kertum og fáum okkur öl Nú komum við til Íslands eftir 2 vikur og rosaega hlakkar okkur til að hitta alla. Það er sko talið niður dagana. Ég held að það sé komið á hreint með hitting að á föstudeginum 21. des hitti ég Evu og Hörpu, 22. des á laugardeginum þá hitti ég hinar skvísurnar og kanski 27. hitti ég tönnslu skvísurnar og frá 28-31 förum við í bústað. Æhhh hvað þetta verður HUGGÓ P.S Elsku Karen (systir hennar Lísu) Lísa og fjölskylda, innilega til hamingju með litlu prinsessuna og hlakka mjög mikið að sjá hana knús og kossar Bið að heilsa þangað til næst KV Lísa ljós
»
21.11.2007 21:01:45 / lisayr
Embla sept-okt,07 rúmlega 2 ára Ég var að sækja hana í leikskólann og erum að labba út þegar hún segir "mamma nú verðum við að fara að heimsækja ömmu og afa til Íslands og fara í flugvélina." Ég segi "nei ástin mín, við getum ekki farið núna en við förum bráðlega, En Anna frænka er að koma eftir nokkra daga að heimsækja okkur og það verður rosalega gaman" þá segir Embla "já og líka amma og afi því þau sakna Emblu svo mikið og eru alltaf svo góð við Emblu sín, kanski þau koma bara á morgun" Ég og Embla vorum að þvo þvottinn niðrí í kjallara á Birketinget 14 og ég var að setja stóra bangsa hennar í þvottavélina því það var gubb á honum. Hún var mjög leið á svipinn þegar ég setti hann í vélina en hún sagði ekki neitt. Síðan horfir hún inn í þvottavélina og sér bangsa sinn inni í vélinni. Svo fer vélin af stað og þá byrjar mín að gráta og legst niður á gólfið. Ég hélt fyrst að þetta væri af því að hún vildi leika sér með hann akkurat á meðan ég væri að þvo hann en nei, henni fannst rosalega erfitt að horfa á elsku bangsa sinn í þessari hræðilegu vél. En ég reyndi að hressa hana við og við fórum upp. Þegar vélin var búin fórum við saman niður aftur og ég rétti henni bangsann sinn og hún kallar hárri röddu" Bangsinn minnnnnn" og faðmar hann og knúsar og leggur hann strax á pullu og klappar honum og segir "allt í lagi elsku litla greyið mitt" og tekur hann svo upp og ruggar honum og syngur danski danski dúkkan mín. En svo eftir smá stund segi ég að hann verði að fara í þurrkarann og hún gefur vart leifi á það og svo þegar hann kemur út aftur heirist í henni "æiii elsku litli kúturinn minn" Það minnist vel í huga Emblu þegar pabbi hennar var stunginn af muggi og bólgnaði upp löppin á honum og hefur verið svolítið smeik við flugur eftir það og veit að sumar stinga. Einn daginn þegar ég var að sækja hana í leikskólann og við vorum að keyra heim, þá er hún að tala um býflugur. Þá segir hún allt í einu "mamma, stangaði býflugan þig. Flugan stangaði pabba". Embla sest afturí bílinn og sér límbandsrúllu á gólfinu. "mamma sjáðu þetta" hvað er þetta"? ég segji "þetta er límband" (hún sá mig nota svona fyrir nokkrum dögum og ég bannaði henni að taka en henni fanst þetta frekar spennandi) "Mamma.. er þetta svona hringur" "já" segjuiég "það er alveg rétt hjá þér, þetta er hringur".. Er þetta kanski klukkan" Hún kann að syngja: Tommelfinger, tommelfinger.. hvor er du..her er jeg, her er jeg ,god dag god, dag god dag Þumalfingur er mamman sem var mér vænst og best, Vísifingur er pabbinn sem gaf mér rauðann hest, Langitöng er bróðir sem smíðar falleg gull, Baugfingur er systir sem prjónar sokka úr ull, Litli fingur er barnið sem að leikur sér að skel, litli anginn hann dafnar svo vel.
»
27.10.2007 14:19:05 / lisayr
Jæja þá er kominn tími á nokkrar línur. Allt gengur sinn vana gang hér í DK. Anna systir kom í viku heimsókn núna frá laugard 20.okt til laug 27.okt og var algjört æði að fá hana. Hún kom bara ein og var að fljúga í fyrsta skipti í 11 ár. Við tókum á móti henni með íslenska fánanum á lofti á flugvellinum. Við kíktum fyrsta kvöldið hennar í tívolíið því það var síðasti dagurinn sem er opinn fyrir jól og verður lokað á meðan það er jólaskreitt. Það var og er hér í DK halloween og var allt þakið í andlitskornum kraskerum og kertaljós. Ég, Andri og Anna skelltum okkur í stóru róluna sem margir kannast kanski við, og var útsýnið alveg geggjað. Við fórum nokkrum sinnum í HM líka og náði hún að dressa sig flott upp. Við fórum 3 saman ég, Andri og Anna á Muse tónleikana og OMG hvað þeir voru ÆÐISLEGIR úfffff... við ákváðum að troða okkur svolítið framanlega en þurfti armband til að fá að vera fremst og var það girft að, og ég spyr vörðinn hvort við mættum fara innfyrir (soldið vel í glasi líka) og hún segir að maður þirfti armband og svo stóðum við bara þarna og kemur hún svo til mín og spyr mig hversu mörg við séum og ég segi 3 og hún hleipti okkur inn... hí hí og þá sáum við rosalega vel og fengum sko tónleikana beint í æð. Og auðvita gátum við ekki farið heim beint eftir tónleikana þar sem að Embla gisti hjá tengdó, en Andri fór samt heim á meðan ég og Anna kíktum niðrí bæ. Við fórum á stað sem heitir Drop inn og þar var live music og ódýr bjór Það var rosalega huggulegt að hafa hana og vonandi að hún komi sem fyrst aftur, og erfitt að hugsa til þess að ég sjái hana fyrst aftur um jólin Það er ekki mikið annað að frétta en þetta í bili, ég hef ekki verið dugleg að setja inn myndir á barnaland þar sem að öll 6 hleðslubatteríin mín eiðulögðust í einu og er ég á leiðinni að kaupa ný. Verið dugleg að kvitta fyrir komuna kv Lísa ljós p.s takk fyrir kveðjurnar í síðustu færslu, ég sakkna ykkar líka rosalega mikið og lov u to, kossar og knússss....
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|